Beint í efni
Til baka í yfirlit

Dal­veg­ur 1. Breytt aðal- og deili­skipu­lag. Skipu­lags- og mats­lýs­ing.

deiliskipulag
Lokið
Hlekkur á skipulagsgátt

Skipulags- og matslýsing fjallar um fyrirhugaðar breytingar á aðal- og deiliskipulagi þar sem til stendur að byggja upp fjölbreytta verslunar- og þjónustustarfsemi á Dalvegi 1 með sterk tengsl við Kópavogsdal, með það að markmiði að skapa líflegt og aðgengilegt svæði fyrir íbúa og gesti.

Nánar er fjallað um verkefnið í skipulags- og matslýsingu sem er aðgengileg í Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is, mál nr. 1134/2026 og 1135/2026, og á vef Kópavogsbæjar, www.kopavogur.is. Fyrir frekari upplýsingar er hægt að senda fyrirspurn á netfangið skipulag@kopavogur.is eða bóka símtal við skipulagsdeild í gegnum vef Kópavogsbæjar.

Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött til að kynna sér málið. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega í gegnum Skipulagsgátt eigi síðar en 10. nóvember 2026.

Hlekkur á skipulagsgátt
Dalvegur 1. Breytt aðal- og deiliskipulag. Skipulags- og matslýsing. - Kópavogsbær