Beint í efni
Til baka í yfirlit

Heim­a­l­ind 9

Á fundi skipulagsráðs Kópavogs 20. desember 2021 var lagt fram erindi lóðarhafa dags. 14. desember 2021, þar sem sótt er um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að reistur verði sólskáli, alls 12 m² vesturhlið hússins. Samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóðar liggur fyrir að hluta. Að öðru leyti gilda áður samþykktir skilmálar. Uppdrættir í mkv. 1:100 dags. 30. nóvember 2021.

Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Heimalindar 7, 11 og 26.

Kynning hófst 22. desember 2021 og skal ábendingum og athugasemdum við framlagða tillögu skila skriflega til skipulagsdeildar Kópavogsbæjar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða með tölvupósti á skipulag@kopavogur.is fyrir kl. 15:00 mánudaginn 24. janúar 2022.