Leikskólinn við Skólatröð
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 10. janúar 2023 í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir nýjan leikskóla við Skólatröð (áður Vallartröð 12A). Deiliskipulagssvæðið sem er um 0,2 ha að stæðr afmarkast af raðhúsalóðum við Vallartröð og Álfhólsveg til vesturs og norðurs. Raðhúsalóðum við Skólatröð til austurs og bæjarlandi/gönguleið til suðurs. Á lóðinni var áður starfræktur leikskóli í byggingum sem þegar hafa verið fjarlægðar. Áætlað er að fyrirhuguð nýbygging verði um 650 m² að flatarmáli og að byggingin verði á einni hæð. Gert er ráð fyrir að í leikskólanum verði þrjár deildir fyrir um 75 börn. Miðað er við að aðkoma að leikskólanum verði eftir botnlanga frá Skólatröð og að bílastæði verði samnýtt með Kópavgosskóla eins og hefur verið undanfarin ár. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 13. desember 2022. Tillögunni fylgir jafnframt umhverfismat dags. í desember 2022 og uppfært 26. janúar 2023 ásamt minnisblaði um umferð og aðkomu dags. 18. október 2022 og uppfært 1. febrúar 2023.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattr til að kynna sér tillöguna. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar Umhverfissviðs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 16:00 miðvikudaginn 19. apríl 2023.