Silfursmári 1-7. Breytt aðal- og deiliskipulag. Skipulags- og matslýsing.
Skipulags- og matslýsing fjallar um fyrirhugaða breytingu á aðalskipulagi þar sem til stendur að hækka hámarkshæð húsa á hluta svæðisins í allt að 10 hæðir, með efstu hæð inndregna, og breytingar á deiliskipulagi þar sem fyrirhugað er að fjölga íbúðum, auka heimilt byggingarmagn, breyta fyrirkomulagi og hæðum bygginga og bæta torgsvæði og tengingar við og um svæðið.
Nánar er fjallað um verkefnið í skipulags- og matslýsingu sem er aðgengileg í Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is, mál nr. 1132/2026 og 1133/2026, og á vef Kópavogsbæjar, www.kopavogur.is. Fyrir frekari upplýsingar er hægt að senda fyrirspurn á netfangið skipulag@kopavogur.is eða bóka símtal við skipulagsdeild í gegnum vef Kópavogsbæjar.
Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött til að kynna sér málið. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega í gegnum Skipulagsgátt eigi síðar en 10. nóvember 2026.