Urðarhóll leikskóli.
Skipulagsráð samþykkti 2. maí sl. að kynna í grenndarkynningu tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðar leikskólans Urðarhóls. Í breytingunni felst að komið verði fyrir byggingarreit fyrir lausa kennslustofu á norðvesturhluta lóðarinnar. Áætluð stærð byggingarreits er um 135 m².
Uppdrættir í mkv. 1:1000, 1:500 og 1:250 dags. 29. apríl 2022.
Skipulagsráð samþykkti með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Kópavogsbrúnar 1, 2 og 4.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 12:00 föstudaginn 10. júní 2022.
Skipulagsfulltrúinn í Kópavogi.