Vatnsendahvarf/Vatnsendahæð. Deiliskipulag.
Kynningargögn
- Uppdráttur dags. 1. nóvember 2023.
- Skýringaruppdráttur dags. 1. nóvember 2023.
- Greinargerð deiliskipulag uppfærð 1. nóvember 2023.
- Greinargerð - fylgiskjöl deiliskipulags. Fyrri hluti.
- Greinargerð - fylgiskjöl deiliskipulags. Seinni hluti.
- Umhverfismat uppfært 21. júní 2023.
- Umsögn skipulagsdeildar dags. 2. nóvember 2023.
- Yfirlit yfir fylgiskjöl umsagnar.
- Umsögn, fylgiskjöl 1-10.
- Umsögn, fylgiskjöl 11-17.
- Umsögn, fylgiskjal 18. Fyrri hluti.
- Umsögn, fylgiskjal 18. Seinni hluti.
- Umsögn, fylgiskjöl 19-23.
Auglýsing um afgreiðslu bæjarstjórnar Kópavogsbæjar á tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Vatnsendahvarf.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjarstjórn Kópavogsbæjar þann 14. nóvember 2023 tillögu að nýju deiliskipulag fyrir íbúðarhverfi í Vatnsendahvarfi.
Vatnsendahvarf/Vatnsendahæð. Deiliskipulag.
Nýtt deiliskipulag fyrir Vatnsendahvarf gerir ráð fyrir nýju íbúðahverfi með fjölbreyttu formi íbúða, leikskóla/skóla og útivistarsvæðum ásamt möguleika á verslun og þjónustu. Í tillögunni er gert ráð fyrir um 500 íbúðum alls í sérbýli (einbýli, raðhús/parhús), klasabyggingum og fjölbýlishúsum á 2-3 hæðum auk kjallara.
Deiliskipulagssvæðið er um 29 ha og liggur að mörkum fyrirhugaðs Arnarnesvegar, Kórahverfis og Hvörfum í Vatnsenda.
Deiliskipulagið tekur gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda.
Vakin er athygli á málskotsrétti samanber 10. kafla skipulagslaga nr. 123/2010 og lög um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um samþykkt deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda