Svæðisskipulag
Svæðisskipulag er skipulagsáætlun sem nær til tveggja eða fleiri sveitarfélaga sem mynda sameiginlegt svæði.
Hlutverk þess er að samræma stefnu um landnotkun, samgöngu- og þjónustukerfi, umhverfismál og þróun byggðar til lengri tíma, eða að lágmarki til 12 ára.
Hvað felst í svæðisskipulagi?
Svæðisskipulag er skipulagsáætlun sem tekur til tveggja eða fleiri samliggjandi sveitarfélaga sem mynda landfræðilega, hagræna eða félagslega heild.
Í skipulaginu er sett fram stefna viðkomandi sveitarfélaga um sameiginlega hagsmuni, eins og byggðaþróun, samgöngur og annað sem við getur átt.
Samræmi í skipulagi
Svæðisskipulag er stefnumótandi rammi sem aðalskipulag sveitarfélaga þarf að taka mið af.
Mikilvægt er að samræmi sé milli skipulagsáætlana innan sama svæðis.
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins nefnist Höfuðborgarsvæðið 2040.
Það er sameiginleg uppbyggingaráætlun sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og leggur grunn að þróun svæðisins til framtíðar.