Borgarlínan
Borgarlínan er hágæða almenningssamgöngukerfi (e. Bus Rapid Transit) sem mun aka að mestu í sérrými og hafa forgang á gatnamótum.
Borgarlínan mun þannig fara um umferðarþyngstu svæði höfuðborgarsvæðisins án þess að önnur umferð hafi áhrif á ferðir hennar.

Borgalínan í Kópavogsbæ

Þar sem Borgarlínan mun ferðast um umferðarþyngstu og þéttingar- og atvinnusvæði höfuðborgarsvæðisins er hún lykillinn að því að létta á og draga úr vexti almennrar umferðar. Þar sem það mun taka skemmri tíma að ferðast með Borgarlínunni.
Strætó mun ásamt Borgarlínunni mynda heildstætt kerfi almenningssamgangna fyrir allt höfuðborgarsvæðið. Borgarlína er hluti af samgöngusáttmálanum sem felur í sér endurbótum á stofnvegum, Borgarlínu og strætóleiðum, hjóla- og göngustígum og umferðarstýringu, umferðaflæði og öryggisaðgerðum á höfuðborgarsvæðinu.
Stöðvar Borgarlínunnar verða yfirbyggðar og með þrepalausu aðgengi beint inn í vagnana. Vagnar munu aka á 7-10 mínútna fresti á annatímum sem stytta mun bið- og ferðatíma verulega. Sérrými Borgarlínunnar mun jafnframt nýtast fyrir viðbragðsaðila til að minnka viðbragðstíma slökkviliðs, sjúkrabifreiða og lögreglu. Með nýju leiðarneti Strætó og Borgarlínunnar er gert ráð fyrir að sjö af hverjum tíu íbúum verði í göngufjarlægð (400 m) frá stöð almenningssamgangna sem ganga mun á tíu mínútna fresti eða oftar.
Fyrsta lota Borgarlínunnar

Fyrsta lota Borgarlínu liggur um Kópavog og var rammahluti aðalskipulags fyrir fyrstu lotu Borgarlínu samþykkt um mitt ár 2025. Samhliða var unnið umhverfismat framkvæmdarinnar.
Hægt er að nálgast gögn og upplýsingar um skipulagsferlið og ferli umhverfismats á skipulagsgátt Skipulagsgáttin.
Lota 1 er hluti af heildar verkefninu en nánar má kynna sér verkefnið í heild á:
Heimasíðu Borgarlínunnar ( Borgarlínan)
Verksjá Betri samgangna (Betri samgöngur)
Heimasíðu Betri samgangna (Home - Betri samgöngur)
Á næstu misserum

Á næstu misserum mun hefjast deiliskipulagsvinna vegna fyrstu lotu Borgarlínu innan Kópavogsbæjar. Þar verður ákveðið hvernig fyrirkomulag Borgarlínu verður um Borgarholtsbraut og Hafnarbraut. Lega Borgarlínu hefur verið ákvörðuð í aðalskipulagi en fyrirkomulag götukassans verður endalega ákvörðuð í deiliskipulagsvinnunni. Á vinnslutíma verða kynningarfundir og munu íbúar hafa tækifæri til að koma athugasemdum og ábendingum á framfæri á fundum og í gegnum skipulagsgátt þegar að því kemur.
Brúin Alda er hluti af verkefninu áætlað er að brúin verði opnuð árið 2028. Hægt er að fylgjast með verkefninu á sérstakri síðu verkefnisins