Beint í efni

Sorp og end­ur­vinnsla

Með einfaldri flokkun á heimilinu stuðlum við að bjartari og umhverfisvænni framtíð.

Sorp­hirðu­dagatal

Sláðu inn heimilisfangið þitt til að sjá hvenær tunnurnar verða næst tæmdar við heimili þitt miðað við áætlun.

Heimilissorp í Kópavogi er hirt af fyrirtækinu Kubbi. Hirðutíðni allra úrgangsflokka er á tveggja vikna fresti.

Ef spurningar vakna eða eitthvað má betur fara, vinsamlegast sendið ábendingu eða hafið samband við Þjónustumiðstöð í síma 441 9000.

Djúpgámar eru útbúnir magnskynjurum og fylgja ekki áætlun sorphirðudagatalsins. Djúpgámar eru tæmdir af Íslenska Gámafélaginu.

Fyrirvari
Líta skal á sorphirðudagatalið sem viðmiðunardagatal. Veðurfar, veikindi, bilanir og aðrir ófyrirséðir þættir geta haft áhrif en almennt ætti ekki að skeika meiru en hálfum til einum degi á sorphirðu milli hverfa.

Flokk­un í Kópa­vogi

Í Kópavogi er fjórflokkun sorps við hvert íbúðarhús. Sorptunnurnar eru fyrir pappa og pappír, plast, matarleifar og blandaðan úrgang.

Sjá nánar

Að­gengi og við­hald sorp­tunna

Aðgengi að og hreinsun á sorptunnum er á ábyrgð íbúa. Sé aðgengi hindrað verða tunnurnar ekki tæmdar.

Samkvæmt kafla 6.12 í byggingarreglugerð skulu sorptunnur vera í sorpgerði eða sorpskýli. Aðgengi að þeim þarf að vera greiðfært svo hægt sé að tæma tunnurnar án vandkvæða.

Á veturna þurfa húseigendur að hreinsa snjó frá sorpgeymslum og leiðinni að þeim innan lóðar.

Sorpílát sem losuð eru í Kópavogi eru í eigu bæjarins. Kópavogur sér um að viðhalda og endurnýja skemmd sorpílát. Ef tjón á íláti er hægt að rekja til slæmrar umgengni kann íbúi að þurfa að greiða fyrir endurnýjun þess. Það er á ábyrgð íbúa að hreinsa ílátin.

Ábendingar um bilaðar sorptunnur skal senda á thjonustumidstod@kopavogur.is eða hafa samband í síma 441-9000.

Í Kópavogi er notast við samræmt lyklakerfi fyrir læstar sorpgeymslur. Það er á ábyrgð húsfélags að sorpgeymsla sé aðgengileg sorphirðunni. Kópavogsbær tekur ekki við stökum lyklum frá húsfélögum. Talnalásar eru ekki samþykktir.

Samræmt kerfi er til sölu hjá Lásum neyðarþjónustu á Skemmuvegi 4.

Sorp­hirðu­gjöld

Útreikningur sorphirðugjalda byggir á tveimur þáttum: samsetningu sorpíláta við fasteignina og eignarhlutfalli viðkomandi íbúðar í húsinu. Sorphirðugjöld eru innheimt með fasteignagjöldum.

Sjá nánar