Beint í efni

Vatns­veita

Vatnsveita Kópavogs annast rekstur og viðhald á dreifikerfi neysluvatns í bænum.

Neyðarsími vatnsveitu Kópavogs er 840 2690.

Athugið að neyðarsíminn er eingöngu ætlaður fyrir brýn erindi, utan opnunartíma.

Starf­semi vatns­veitu

Frá árinu 2007 hefur Kópavogsbær verið með í notkun sitt eigið vatnsból í Vatnsendakrikum í Heiðmörk. Sama ár var gerður samningur við Garðabæ um vatnsöflun næstu 40 ár.

Vatnið kemur úr fjórum borholum og er því dreift um stofnlagnir, dreifikerfi og heimæðar til íbúa í Kópavogi og Garðabæ.

Starfsemi vatnsveitunnar uppfyllir skilyrði matvælareglugerðar og er vatnsveitan með virkt innra eftirlit og starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs.

Vatnsveitan sér meðal annars um:

  • Rekstur og viðhald dreifikerfis.
  • Lekaleit og lekaviðgerðir.
  • Nýlagnir og endurnýjun heimtauga og stofnlagna.
  • Vöktun á vatnabúskap dreifikerfis, miðlunartanka og brunnsvæðis.

Vatns­veita Kópa­vogs­bæj­ar

Vatnsveitan deilir húsnæði með Þjónustumiðstöð Kópavogs.
Hægt er að hafa samband í síma 441 9000 eða senda tölvupóst.
Hafa samband

Vatnsveita - Kópavogsbær