Akstursþjónusta
Sækja þarf um akstursþjónstu rafrænt í gegnum Minn Kópavogur eða skila inn skriflegri umsókn í þjónustuver. Með umsókn þarf að fylgja vottorð fagaðila sem staðfestir fötlun umsækjanda eða skort á getu hans til að ferðast með almenningsvögnum. Í umsókn þurfa að koma fram ástæður fyrir umsókn, svo og óskir um fjölda ferða.
Akstursþjónusta fatlaðra
Akstursþjónustu fatlaðs fólks hefur það að markmiði að gera þeim sem ekki geta nýtt almenningsfarartæki vegna fötlunar kleift að stunda atvinnu, nám og njóta tómstunda.
Farþegar með samþykkta akstursþjónustu panta bíl í síma 515 2720 hjá Teiti ehf sem sér um aksturinn. Hægt að hringja og panta bíl milli klukkan 8 og 16 á virkum dögum og milli klukkan 10 og 14 um helgar. Einnig má panta bíl með tölvupósti á netfangið ferd@teitur.is
Akstursþjónustan er í boði:
Virka daga frá kl. 6:30 til kl. 24:00.
Laugardaga frá kl. 8:00 til kl. 24:00.
Sunnudaga frá kl. 11:00 til kl. 24:00.
Akstur á stórhátíðardögum er auglýstur sérstaklega.
Afpanta þarf bíl með meira en 2ja klukkustunda fyrirvara.
Gjald er innheimt með gíróseðli um hver mánaðarmót og nálgast má gjaldskrá hér fyrir neðan.
Almennt gjald fyrir fólk með fötlun fyrir hverja ferð er helmingur af fargjaldi strætó.
Þetta verð á við:
- Fastar ferðir pantaðar með dags fyrirvara (fyrir kl. 16:00 daginn áður).
- Kvöldferðir pantaðar fyrir kl. 16 á virkum dögum eða fyrir kl. 14 um helgar.
- Gjald fyrir fylgdarmann er fullt fargjald Strætó.
Ferðir sem kosta kr. 1.000 kr. aukalega:
- Samdægurs ferðir, þ.e ferðir sem hafa ekki verið pantaðar fyrir klukkan 16 daginn áður.
- Kvöldferð sem er pöntuð eftir kl. 16 á virkum degi eða eftir kl. 14 um helgi, með a. m. k. 2ja tíma fyrirvara.
Hægt er að kaupa 6 og 12 mánaða kort. Gildir fyrir fastar ferðir sem mætt er í.
- Gjald árskorts miðast við árskort fyrir öryrkja samkvæmt gjaldskrá Strætó
- Gjald 6 mánaða korts miðast við 60% af árskorti fyrir öryrkja samkvæmt gjaldskrá Strætó.
- Tímabilskort taka gildi þann 21. eftir greiðslu til og með 20. þess mánaðar sem áskriftin endar.
Akustursþjónusta eldra fólks
Akstursþjónusta eldra fólks er fyrir þau sem ekki geta nýtt sér almenningsvagna eða einkabíl til að komast ferða sinna.
Meginmarkmið akstursþjónustu fyrir eldra fólk í Kópavogi er að stuðla að auknu félagslegu sjálfstæði og er fyrir 67 ára og eldri sem búa í heimahúsi.
Sækja þarf um akstursþjónustu rafrænt í gegnum þjónustugátt eða skila inn skriflegri umsókn í þjónustuver.
Nánari upplýsingar má fá í þjónustuveri Kópavogsbæjar í síma 441 0000.
Farþegar með samþykkta akstursþjónustu panta bíl í síma 515 2720 hjá Teiti ehf sem sér um aksturinn. Hægt að hringja og panta bíl milli klukkan 8 og 16 á virkum dögum og milli klukkan 10 og 14 um helgar. Einnig má panta bíl með tölvupósti á netfangið ferd@teitur.is
Akstursþjónustan er í boði:
Virka daga frá kl. 6:30 til kl. 24:00.
Laugardaga frá kl. 8:00 til kl. 24:00.
Sunnudaga frá kl. 11:00 til kl. 24:00.
Akstur á stórhátíðardögum er auglýstur sérstaklega.
Afpanta þarf bíl með meira en 2ja klukkustunda fyrirvara.
Gjald er innheimt með gíróseðli um hver mánaðarmót og nálgast má gjaldskrá hér fyrir neðan.
Gjaldskrá
Akstursþjónusta eldra fólks | Verð |
|---|---|
1 - 16 ferðir á mánuði | 673 kr hver ferð |
Hver ferð umfram 16 ferðir á mánuði | 1.346 kr hver ferð |
Samdægursgjald ef ekki er pantað fyrir klukkan 16.00 daginn áður | 1.000 kr hver ferð |
Akstursþjónusta fólks með fötlun
Hægt er að kaupa árskort og sex mánaða kort. Kortið gildir aðeins fyrir fasta ferð sem mætt er í.
Útskýring: Föst ferð eða ferðir eru þær sem eru pantaðar á meðan þjónustuver akstursþjónustu er opið, með a.m.k dags fyrirvara, það er fyrir kl. 16.00 daginn áður virka daga og 14.00 um helgar.
- Kortið gildir ekki fyrir ferðir sem ekki er mætt í.*
- Kortið gildir ekki fyrir ferðir sem eru pantaðar samdægurs eða eftir að þjónustusíma Teits lokar daginn áður.**
* Afpanta þarf með allavega 2ja tíma fyrirvara á meðan þjónustuver Teits er opið annars er innheimt fyrir ferðina sérstaklega.
** Þær ferðir bera alltaf „samdægursgjald“ krónur 1000 krónur er leggst við verð ferðar og er ekki innifalið í áskriftarkorti).
Akstursþjónusta fólk með fötlun | Verð |
|---|---|
1/2 strætófargjald | 345 kr hver ferð |
Samdægursgjald ef ekki er pantað fyrir kl. 16.00 daginn áður | 1.000 kr hver ferð |
Árskort 12 mánaða | 33.600 kr |
Sex mánaða kort | 20.160 kr |