Þjónustuíbúðir
Í Kópavogi eru þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk sem vill búa sjálfstætt í öruggu umhverfi með aðgang að þjónustu eftir þörfum. Íbúðirnar eru staðsettar víða í bænum og í nálægð við fjölbreytta þjónustu, félagsstarf og útivist.
Sunnuhlíðarsamtökin reka 109 þjónustuíbúðir fyrir fólk 60 ára og eldra við Kópavogsbraut 1A og 1B og við Fannborg 8. Íbúðirnar eru af mismunandi stærðum og gerðum og hugað er að góðu aðgengi, öryggi og notalegu umhverfi.
Íbúar hafa aðgang að sameiginlegri aðstöðu og fjölbreyttri þjónustu í nærumhverfi, þar á meðal:
- Félagsstarfi
- Matsal
- Hársnyrtingu
- Fótaaðgerðum.
Við Kópavogsbraut er innangengt í þjónustukjarna Sunnuhlíðar þar sem boðið er upp á ýmsa þjónustu og reglulegar uppákomur. Stutt er í sundlaug, gönguleiðir og þjónustu í miðbæ Kópavogs.
Í Fannborg 8 er félagsmiðstöðin Gjábakki á jarðhæð hússins þar sem hægt er að taka þátt í félagsstarfi, setjast niður yfir kaffibolla og fá hádegisverð alla virka daga.
Íbúðir Sunnuhlíðarsamtakanna eru með búseturétti en ekki hefðbundnu eignarfyrirkomulagi.
Boðaþing býður upp á þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk sem vill búa sjálfstætt með góðu aðgengi að þjónustu, félagsstarfi og heilsueflingu.
Lögð er áhersla á að skapa umhverfi sem styður við öryggi, vellíðan og virkni í daglegu lífi. Fjölbreytt dagskrá og þjónusta stendur íbúum til boða. Innangengt er í félagsmiðstöðina Boðann sem Hrafnista rekur.
Þar hafa íbúar meðal annars aðgang að:
- Matsal
- Félagsstarfi
- Tækjasal
- Hárgreiðslustofu
- Fótaaðgerðastofu
- Sjúkraþjálfun
Nærumhverfið býður upp á fjölbreytta möguleika til útivistar og samveru, meðal annars sundlaug, heita potta, gönguleiðir og félagsaðstöðu.
Í Boðaþingi eru 95 íbúðir af mismunandi stærðum og gerðum, bæði tveggja og þriggja herbergja.