Beint í efni

Dvöl - Sam­fé­lags­hús

Dvöl er fyrir fólk óháð búsetu sem vill sækja sér félagsskap og taka þátt í fjölbreyttu starfi í notalegu umhverfi.

Starf­sem­in

Sam­fé­lags­hús og skamm­tíma­dvöl
Samfélagshús og skammtímadvöl

Dvöl er samfélagshús sem býður upp á aðstöðu fyrir fólk óháð búsetu sem vill brjótast úr einangrun og sækja sér félagsskap. Boðið er upp á heitan mat í hádeginu gegn vægu gjaldi. Einnig er í boði að sækja listasmiðju í hverri viku og taka þátt í öðrum skapandi verkefnum.

Ekki þarf tilvísun læknis eða annars fagfólks til að mæta á staðinn.

Helstu áherslur

  • Stuðla að bættum lífsgæðum.
  • Að skapa umhverfi þar sem gagnkvæm virðing og traust ríkir.
  • Rjúfa félagslega einangrun fólks með andlegar-og geðrænar áskoranir.
  • Fjölbreytt dagskrá í boði við hæfi hvers og eins.

Í Dvöl kemur fólk á eigin forsendum til að njóta samveru. Öll eru velkomin og alltaf heitt á könnunni.

Heimilisfang: Reynihvammur 43

Sími: 441 9841

Netfang: dvol(hjá)kopavogur.is


Opnunartími er frá kl. 10:00 - 15:30 virka daga.

Hægt er að fylgjast með starfinu á facebooksíðu Dvalar.