Notendasamningar
Notendasamningar eru fyrir þau sem þurfa reglulegan og umfangsmikinn stuðning í daglegu lífi og vilja hafa meiri stjórn á því hvernig stuðningurinn fer fram.
Bókaðu samtal við ráðgjafa í málefnum fatlaðs fólks til að fá upplýsingar um notendasamninga, umsóknarferlið og þann stuðning sem stendur til boða.
Hvernig virkar þetta?
Með notendasamningi fær fólk fjármagn í stað hefðbundinnar þjónustu og getur sjálft skipulagt stuðninginn út frá eigin þörfum og aðstæðum. Þessu fyrirkomulagi er ætlað að skapa meira svigrúm og sveigjanleika í daglegu lífi.
Notendasamningar eru fyrir þau sem:
- Eiga lögheimili í Kópavogi.
- Eru með viðvarandi og umfangsmikla stuðningsþörf.
- Búa á eigin heimili eða foreldrahúsum.
- Þurfa reglulegan stuðning í daglegu lífi.
Foreldrar eða forsjáraðilar geta sótt um fyrir hönd fatlaðra barna.
Stuðningsþörf er fyrst metin af starfsfólki velferðarsviðs Kópavogs. Á grundvelli matsins er ákveðið umfang stuðnings og fjárhæð samnings.
Með notendasamningi sér fólk sjálft um skipulag stuðningsins, þar á meðal ráðningu og umsýslu aðstoðarfólks. Þannig getur stuðningurinn verið sveigjanlegri og betur sniðinn að daglegu lífi og þörfum hvers og eins.
Notendasamningar geta meðal annars náð til stuðningsþjónustu og stoðþjónustu, en ná ekki til þjónustu eins og skammtímadvalar, akstursþjónustu eða dagdvalar aldraðra.
Sótt er um notendasamning í gegnum Minn Kópavogur.
Með umsókn þurfa að fylgja gögn sem staðfesta stuðningsþörf, til dæmis:
- Sjálfsmat.
- Læknisvottorð.
- Örorku- eða umönnunarmat.
- SIS eða RAI mat eftir því sem við á.
Umsóknir eru metnar út frá reglum Kópavogsbæjar og mati á stuðningsþörf umsækjanda.
Með notendasamningi hefur fólk áhrif á hvernig stuðningurinn er skipulagður og hvenær hann fer fram.
Það felur meðal annars í sér að:
- Sjá um skipulag stuðnings.
- Ráða aðstoðarfólk.
- Bera ábyrgð á umsýslu og ráðstöfun fjármagns samkvæmt samningi.
- Skila reglulega upplýsingum og gögnum til velferðarsviðs.
Lögð er áhersla á samráð, sveigjanleika og að þjónustan taki mið af þörfum og aðstæðum hvers og eins.
Notendasamningar eru tímabundnir og fara reglulega í gegnum endurmat. Fylgst er með hvernig stuðningurinn nýtist og hvort þörf sé á breytingum á umfangi þjónustunnar.
Ef aðstæður breytast getur farið fram nýtt mat á stuðningsþörf.