NPA - Notendastýrð persónuleg aðstoð
NPA byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf.
Með NPA hefur fatlað fólk fulla stjórn á eigin aðstoð og ákveður hvernig stuðningur er skipulagður, hvenær hann fer fram og hver veitir hann. Markmiðið er að styðja við sjálfstætt og innihaldsríkt líf með fullri þátttöku í samfélaginu.
Hægt er að bóka samtal við ráðgjafa í málefnum fatlaðs fólks til að fá upplýsingar um NPA og umsóknarferlið.

Hvernig virkar þetta?
Til að eiga rétt á NPA þarf meðal annars að:
- Eiga lögheimili í Kópavogi.
- Vera með staðfesta fötlun.
- Þurfa reglulegan og umfangsmikinn stuðning
- Vera 18 ára eða eldri (foreldrar eða forsjáraðilar geta sótt um fyrir hönd barns).
- Búa sjálfstætt eða í foreldrahúsum.
Fólk sem býr í sértæku húsnæði getur í ákveðnum tilvikum sótt um NPA ef stefnt er að sjálfstæðri búsetu.
Sótt er um NPA hjá velferðarsviði Kópavogsbæjar.
Umsókn er unnin í samvinnu við umsækjanda þar sem farið er yfir aðstæður, stuðningsþarfir og þá þjónustu sem þegar er til staðar.Leiðbeint er um hvaða gögn þurfa að fylgja umsókn.
Ef umsókn er samþykkt er gerð áætlun um umfang stuðnings og fjölda vinnustunda. Í kjölfarið getur tekið við bið eftir úthlutun. Á meðan er haft reglulegt samráð og upplýsingar veittar um stöðu mála og aðra þjónustu sem stendur til boða.
Ef umsókn er synjað er hægt að óska eftir endurskoðun eða kæra ákvörðun.
Notandi með NPA er verkstjórnandi eigin aðstoðar og hefur stjórn á því hvernig stuðningurinn er skipulagður og framkvæmdur.
Það felur meðal annars í sér:
- Að taka þátt í vali á aðstoðarfólki.
- Skipulagi vinnu
- Daglegri framkvæmd þjónustunnar.
Notandi getur valið sér umsýsluaðila sem sér um umsýslu samnings, launagreiðslur og starfsmannamál aðstoðarfólks.
Í ákveðnum tilvikum er einnig hægt að fá stuðning við verkstjórnarhlutverkið með aðstoðarverkstjórnanda.