Beint í efni
Örvi

Örvi

Örvi býður einstaklingum með skerta starfsgetu upp á starfshæfingu og starfsþjálfun með það að markmiði að efla færni þeirra og undirbúa þá fyrir störf á almennum vinnumarkaði.

Starfsemin byggir á fjölbreyttum verkefnum, meðal annars framleiðslu, pökkun og samsetningu. Forstöðumaður er Birgitta Bóasdóttir.

Örvi

Einkunnarorð: Vinna - virkni - vellíðan

Örvi hóf starfsemi sína árið 1984 og hefur verið í núverandi húsnæði að Kársnesbraut 110, Kópavogi frá árinu 1987.

Um 30 þjónustunotendur með skerta starfsgetu geta verið í starfshæfingu, starfsþjálfun eða iðju hverju sinni. Boðið er upp á viðveru hálfan daginn, annað hvort fyrir eða eftir hádegi.

Starfsmenn eru 6 talsins; forstöðumaður, verkstjórar, starfsráðgjafi og fulltrúi á skrifstofu.

Starfsemi Örva er tvíþætt. Annars vegar fer fram þjálfun og styrking einstaklinga með skerta starfsgetu sem hefur það að markmiði að gera viðkomandi hæfari til starfa á almennum vinnumarkaði. Hins vegar er Örvi fyrirtæki í umtalsverðum rekstri. Framleiðsla plastumbúða og ýmis önnur verkefni fyrir viðskiptavini (pökkun, flokkun og samsetningar) er grundvöllurinn sem starfsþjálfunin hvílir á.

Örvi

Framleiðsla og þjónusta

Örvi sinnir fjölbreyttri framleiðslu og einsetur sér að veita góða og vandaða þjónustu. Grundvöllur árangurs Örva hvað varðar þjálfun einstaklinga með skerta vinnugetu til virkrar atvinnuþátttöku á almennum vinnumarkaði eru næg og fjölbreytileg verkefni og framleiðsla fyrir viðskiptavini.

Örvi

Þjónusta við einstaklinga með skerta starfsgetu

Fötluðum einstaklingum og öðrum með skerta starfsgetu stendur til boða að koma í tímabundna starfshæfingu og starfsþjálfun í Örva (sjá umsóknarferli hér). Markmiðið er að sem flestir þjónustunotendur geti átt þess kost að starfa á almennum vinnumarkaði að lokinni hæfingu og þjálfun í Örva. Þessi þáttur starfseminnar greinir Örva frá öðrum vinnustöðum fyrir fatlaða.

Grundvöllur faglegs starfs Örva er að líkja í sem allra flestu eftir þeim aðstæðum sem þjónustunotendur koma til með að standa frammi fyrir á almennum vinnustöðum. Almennt gilda sömu reglur í Örva og á vinnustöðum á almennum vinnumarkaði.

Reynslan hefur sýnt að starfshæfing og starfsþjálfun í Örva auðveldar einstaklingum að fóta sig á almennum vinnumarkaði. Að lokinni þjálfun í Örva stendur til boða stuðningur starfsfólks Atvinnu með stuðningi.

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir að deila skoðun þinni!

Ástæða

Aðrar upplýsingar

Ef þú vilt fá svar við athugasemdinni skildu eftir netfang eða símanúmer