Skammtímadvöl
Skammtímadvöl er þjónusta fyrir fötluð börn og ungmenni með miklar stuðnings- og umönnunarþarfir.
Markmið þjónustunnar er að styðja við börn og fjölskyldur þeirra með tímabundinni dvöl þar sem boðið er upp á umönnun, aðstoð við dagleg verkefni og félagslega þátttöku.
Fáðu ráðgjöf
Nú er hægt að bóka samtöl við ráðgjafa barna- og fjölskylduteymis á einfaldan hátt í gegnum heimasíðu Kópavogsbæjar. Notast er við bókunarkerfið Microsoft Bookings sem sýnir notendum lausan tíma viðkomandi ráðgjafa
Bóka samtalSkammtímadvalir fyrir íbúa Kópavogs eru staðsettar í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Hver dvalarstaður hefur sína sérstöðu sem tekur mið af aldri og þjónustuþörf notenda.
Þjónustan er ætluð börnum og ungmennum sem þurfa stuðning umfram jafnaldra vegna fötlunar eða langvarandi stuðningsþarfa. Heimilt er að veita einstaklingum eldri en 18 ára áframhaldandi skammtímadvöl meðan beðið er eftir annarri þjónustu eða búsetuúrræðum.
Þörf fyrir skammtímadvöl er metin út frá aðstæðum einstaklings og fjölskyldu hans. Við matið er meðal annars horft til stuðningsþarfa, fötlunar og félagslegra aðstæðna. Dvöl getur verið reglubundin eða tímabundin eftir þörfum hvers og eins.
- Móaflöt í Garðabæ – Fyrir börn á aldrinum 6–16 ára.
- Hnotuberg í Hafnarfirði – Fyrir einstaklinga frá 16 ára aldri.
- Hrauntunga í Kópavogi – Fyrir ungt fólk sem undirbýr sig fyrir sjálfstæða búsetu.
Sótt er um skammtímadvöl hjá Kópavogsbæ. Umsókn er metin í samráði við umsækjanda, fjölskyldu og eftir atvikum aðra fagaðila.
Bókaðu samtal við ráðgjafa barna- og fjölskylduteymis fyrir nánari upplýsingar.
Skammtímadvöl er gjaldfrjáls. Einstaklingar eldri en 18 ára greiða fyrir fæði samkvæmt gildandi gjaldskrá.