Beint í efni

Stuðn­ings- og stoð­þjón­usta

Stuðnings- og stoðþjónusta er fyrir fatlað fólk sem býr á eigin heimili og þarf stuðning í daglegu lífi. Markmið þjónustunnar er að styðja fólk til sjálfstæðs lífs og gera því kleift að búa sem lengst á eigin heimili.

Þjónustan er sniðin að þörfum hvers og eins og getur verið veitt bæði innan og utan heimilis.

Hvað er í boði?

Stuðn­ings- og stoð­þjón­usta
Stuðnings- og stoðþjónusta

Þú getur meðal annars fengið:

  • Stuðning við athafnir daglegs lífs.
    Til dæmis við skipulag dagsins eða dagleg verkefni.
  • Stuðning við heimilishald
    Til dæmis heimilisþrif eða við önnur verkefni á heimilinu.
  • Félagslegan stuðning
    Sem miðar að því að draga úr félagslegri einangrun og styðja við þátttöku í samfélaginu.
  • Heimsendan mat
    Fyrir þau sem geta ekki séð um matseld sjálf og hafa ekki tök á að borða í félagsmiðstöð.
  • Aðstoð viðbragðsteymis
    Þegar þörf er á tiltekt á heimili áður en þjónusta getur hafist.
  • Hópstuðning
    Þegar það á við og í samráði við viðkomandi einstakling.

Ef stuðningsþjónusta dugar ekki til er einnig hægt að veita stoðþjónustu.

Hvern­ig sæki ég um?

Sótt er um stuðnings- og stoðþjónustu rafrænt á Minn Kópavogur. Einnig er hægt að skila inn skriflegri umsókn í þjónustuver.

Eftir að umsókn berst er stuðningsþörf umsækjanda metin og umsókn tekin til afgreiðslu.

Börn og ungmenni undir 18 ára aldri geta einnig fengið stuðningsþjónustu sem er sniðin að þeirra þörfum.