Beint í efni

Fjár­hags­að­stoð

Ef þú átt erfitt með að standa undir framfærslu geturðu sótt um fjárhagsaðstoð hjá Kópavogsbæ. Markmið fjárhagsaðstoðar er að tryggja að íbúar geti séð fyrir sér og sínum þegar tekjur duga ekki til framfærslu.

Félagsráðgjafi á vakt svarar fyrirspurnum, veitir ráðgjöf og aðstoðar við að bóka viðtal.

Um­sókn­ar­ferl­ið og skil­yrði

Sér­stök að­stoð

Heimildargreiðslur vegna sérstakra aðstæðna.

Í sumum aðstæðum er hægt að fá viðbótaraðstoð ef upp koma sérstakar félagslegar eða fjárhagslegar aðstæður. Slík aðstoð er metin í hverju tilviki fyrir sig og getur verið veitt sem styrkur eða lán.

Sótt er um aðstoðina í gegnum umsókn um fjárhagsaðstoð eða í samráði við ráðgjafa á velferðarsviði.

Félagsráðgjafi veitir ráðgjöf.

Fjárhagsaðstoð - Kópavogsbær