Beint í efni

Stuðn­ings­þjón­usta

Heimastuðningur og heimsendur matur.

Fyr­ir hverja?

Þjónustan er ætluð fólki sem býr á eigin heimili og þarf stuðning vegna skertrar getu, fötlunar, fjölskylduaðstæðna, álags eða veikinda.

Markmiðið er að styðja fólk við athafnir daglegs lífs, heimilishald og efla félagslega þátttöku fyrir þau sem þurfa á því að halda vegna aðstæðna sinna.

Hvað er í boði?

Þjónustan getur verið veitt bæði innan og utan heimilis, til lengri eða skemmri tíma.

Í boði er meðal annars:

  • Stuðningur við athafnir daglegs lífs, sem tekur mið af þörfum notanda.
  • Stuðningur við heimilishald, til dæmis heimilisþrif, innlit, öryggisviðvera vegna böðunar og létt hreyfing.
  • Heimsending matar fyrir þau sem geta ekki annast matseld sjálf og hafa ekki tök á að borða í félagsmiðstöðvum aldraðra.

Maturinn er afgreiddur í bökkum og er keyrður heim til viðkomandi um hádegisbil.

Pöntun og afpöntun á heimsendum mat þarf að berast:

  • Fyrir kl. 15:00 daginn áður, mánudaga til fimmtudaga.
  • Fyrir kl. 11:30 á föstudögum vegna máltíða á mánudögum.

Hvern­ig sæki ég um?

Sótt er um stuðningsþjónustu í gegnum Minn Kópavogur eða með því að skila skriflegri umsókn í þjónustuver.

Eftir að umsókn berst er stuðningsþörf metin og umsókn tekin til afgreiðslu.

Hvað kost­ar þjón­ust­an?

Gjald fyrir heimaþjónustu fer eftir tekjum.

  • Einstaklingar og hjón/sambýlisfólk með tekjur undir viðmiðunarmörkum greiða ekki fyrir heimilisþrif.
  • Ef tekjur eru yfir viðmiðunarmörkum er greitt samkvæmt gjaldskrá.

Verðskrá á heimsendum mat er einnig í gjaldskrá hér að neðan.

Stuðningsþjónusta (Heimaþjónusta)

Gildir frá 1. apríl 2026

Neðri mörk

Efri mörk

Gjaldflokkar

Kr./klst.

Einstaklingar

0

457.976 kr.

Flokkur 0

0

457.976 kr.

719.026 kr.

Flokkur I

1.509 kr./klst.

Tekjumörk hjóna
og sambýlisfólks

0

744.211 kr.

Flokkur 0

0

744.212 kr.

1.168.418 kr.

Flokkur I

1.509 kr./klst.

Máltíð

Verð

Stök máltíð

1.384 kr.

Akstur

538 kr.

Akstur

Akstur

Verð per km

Akstur með þjónustuþega

150 kr

Allar gjaldskrár Kópavogsbæjar eru birtar
með fyrirvara um villur.