Aðventuhátíð Kópavogs
Aðventuhátíð Kópavogs verður haldin laugardaginn 29.nóvember. Dagskrá verður á útisvæði og í menningarhúsum frá kl. 15-17. Dagskrá á útisviði hefst kl. 16:

Verið hjartanlega velkomin á aðventuhátíð Kópavogsbæjar laugardaginn 29. nóvember. Dagskrá verður á útisvæði og í menningarhúsum frá kl. 15-17. Dagskrá á útisviði hefst kl. 16:30 sem endar á því að Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri tendrar ljósin á jólatré Kópavogsbæjar.Salka Sól verður kynnir á útisvæði. Jólatufti frá Pilkington Props verður á vappi utandyra ásamt jólasveinum. Karlakór Kópavogs tekur lagið og Skólahljómsveit Kópavogs flytur hátíðleg jólalög. Í menningarhúsunum verða fjölbreyttar smiðjur fyrir allan aldur og tónlistaratriði frá kórum, tónlistarskólanum og strengjakvartett. Tækifæri gefst til að æfa klassísku jólalögin, gera næringarríka jólaköngla fyrir smáfuglana og gera föndur að taívönskum og úkraínskum sið. Í Gerðarsafni, Salnum, Náttúrusafni og Bókasafni Kópavogs verða stimpilstöðvar þar sem þú getur skapað þitt eigið jólakort, hannað af BrummBrumm í fjórum skrefum. Þú finnur allar fjórar stimpilstöðvarnar og smám saman birtist mynd á kortinu þínu. DAGSKRÁ Útisvæði / útisvið kl 15:00-17:00 15:00-16:15 DJ Sunna Ben á útisviði 15:00-16:15 Jólatufti, jólasveinn á stultum og fleiri óvæntir viðburðir 16:30 - 17:00 Dagskrá á útisviði. Jólaskemmtun og ljósin tendruð á útisvæði menningarhúsanna. Salka Sól, Skólahljómsveit Kópavogs og Karlakór Kópavogs koma fram. Rófa úr Jólalundi stýrir jólatrésskemmtun og jólasveinar mæta á svæðið Menningarhús 15:00-16:30 Gerðarsafn 15:00-16:30 Stimpilstöð - prentaðu þitt eigið jólakort 15:00-16:30 Jólapappírsgerð 15:00-16:00 Gjörningar í tengslum við sýninguna Skúlptúr skúlptúr Performans 15:15-15:30 Blásarar frá Tónlistarskóla Kópavogs koma fram 15:45-16:00 Samkór Kópavogs syngur Salurinn 15:00-16:30 Stimpilstöð - prentaðu þitt eigið jólakort 15:00-16:30 Kakó og úkraínskt jólagóðgæti í boði 15:00-15:15 Kórinn Viðlag 15:30-15:45 Kvennakórinn Blika 16:00-16:30 Hjörleifur Valsson fiðluleikari og Jónas Þórir píanóleikari Bókasafn Kópavogs 15:00-16:30 Stimpilstöð - prentaðu þitt eigið jólakort 15:00-16:30 Armbandasmiðja 15:00-16:30 Klippiföndur frá Taívan með GETA 15:00-16:30 Úkraínskt Pavuk jólaföndur með GETA 15:00-15:30 Æfum jólalögin saman með Sigga & Ingibjörgu 15:30-16:30 Tónleikar frá nemendum Tónlistarskóla Kópavogs Náttúrusafn Kópavogs 15:00-16:30 Stimpilstöð - prentaðu þitt eigið jólakort 15:00-16:30 Ó!rói smiðja með ÞYKJÓ 15:00-16:30 Jólakönglar fyrir smáfuglana


