Stafræn lausn fyrir mat á starfi leikskóla veitir yfirsýn og auðveldar umbætur
Kópavogsbær hefur hafið innleiðingu á stafrænu innra mati á starfsemi leikskóla bæjarins. Markmiðið er að öðlast betri yfirsýn yfir starfsemina, gera umbætur markvissari og auka gagnsæi.

Kópavogsbær hefur hafið innleiðingu á stafrænu innra mati á starfsemi leikskóla bæjarins. Markmiðið er að öðlast betri yfirsýn yfir starfsemina, gera umbætur markvissari og auka gagnsæi.
Stafrænt innra mat verður innleitt í alla leikskóla bæjarins í haust. Verkefnið er unnið í samvinnu leikskóladeildar, skrifstofu menntasviðs og skrifstofu umbóta og þróunar sem þróuðu og prófuðu lausnina sem nýtt er fyrir matið. Þá tóku fjórir leikskólar þátt í því að prufukeyra verkefnið á vormisseri.
„Það var mikil þörf að gera matið stafrænt, til þess að það nýttist sem skyldi og frábært að geta unnið lausnina innanhúss, það sparar tíma og pening. Betri aðgangur að gögnum og tölfræði úr leikskólastarfi auðveldar okkur að styðja við starfsemi leikskólanna í samræmi við þarfir þeirra og áherslur. Nú höfum við tækifæri til þess að forgangsraða umbótaverkefnum þannig að nýtist leikskólum og starfsemi þeirra sem best,“ segir Sigrún Hulda Jónsdóttir deildarstjóri leikskóladeildar.
Með því að gera matið stafrænt í stað þess að hafa það á pappírsformi fer enginn tími í úrvinnslu gagna því stjórnendur fá samstundis aðgang að niðurstöðum og tölfræði úr innra mati, sem auðveldar upplýsta ákvarðanatöku og tengingu mats við umbótaverkefni og starfsáætlanir.
Sameiginlegt stjórnborð gefur betri yfirsýn yfir stöðu og framvindu umbóta leikskóla og gerir kleift að styðja við þróun leikskólastarfs með faglegum og markvissum hætti.
Innra mat byggir meðal annars á aðalnámskrá og skólanámskrá leikskóla og hefur það að markmiði að skoða hvernig gengur að vinna að framgangi stefnu og markmiðum leikskóla. Matið er framkvæmt af stjórnendum og starfsfólki leikskólanna.


