Beint í efni
Til baka í yfirlit

Leik­skól­inn Kópa­hvoll stækk­ar

Leikskólinn Kópahvoll tvöfaldast að stærð í árslok þegar nýtt húsnæði skólans við Skólatröð verður tekið í notkun.

Nýtt húsnæði Kópahvols við Skólatröð.
Á myndinni eru frá vinstri: Sigrún Hulda Jónsdóttir deildarstjóri leikskóladeildar, Stefanía Herborg Finnbogadóttir aðstoðarleikskólastjóri, Halla Ösp Hallsdóttir leikskólastjóri og Anna Birna Snæbjörnsdóttir sviðsstjóri menntasviðs.

Leikskólinn Kópahvoll tvöfaldast að stærð í árslok þegar nýtt húsnæði skólans við Skólatröð verður tekið í notkun.

Skipulagið verður með þeim hætti að yngri börnin verða í núverandi húsnæði við Bjarnhólastíg en eldri deildir í Skólatröð. Halla Ösp Hallsdóttir, leikskólastjóri og Stefanía Herborg Finnbogadóttir, aðstoðarleikskólastjóri Kópahvols, eru við stjórnvölinn í leikskólanum og þær hlakka til þegar nýtt húsnæði verður tekið í notkun.

„Þetta er spennandi verkefni og verður gaman að taka á móti fleiri börnum í Kópahvol sem er einn af elstu leikskólum Kópavogs,“ segja þær Halla og Stefanía.

Húsnæðið við Skólatröð mun rúma um 60 leikskólabörn. Framkvæmdir ganga vel og er áætlað að þeim verði lokið í nóvember. Áhersla er á góða hljóðvist í nýja húsnæðinu sem klætt er við og verða leiktæki einnig úr við. Húsið er hannað af ASK arktitektum en byggt af Sérverk.