Beint í efni
Til baka í yfirlit

Hald­ið upp á þjóð­há­tíð­ar­dag­inn í Kópa­vogs­bæ

Haldið var upp á þjóðhátíðardaginn með skrúðgöngu og skemmtiatriðum á tveimur hátíðarsvæðum, við Rútstún og Versali.

17. júní í Kópavogsbæ
17. júní í Kópavogsbæ

Veðrið lék við bæjarbúa á hátíðarhöldum á þjóðhátíðardaginn í Kópavogi.

Haldið var upp á þjóðhátíðardaginn með skrúðgöngu og skemmtiatriðum á tveimur hátíðarsvæðum, við Rútstún og Versali.

Venju samkvæmt leiddu skátarnir og Skólahljómsveit Kópavogs skrúðgönguna sem hófst við MK og lauk á Rútstúni. Fjallkona Kópavogs var í ár Ósk Gunnarsdóttir fjölmiðlakona og steig hún á svið á Rútstúni. Kynnar voru Eva Ruza og Hjálmar Örn á Rútstúni en Saga Garðarsdóttir og Snorri Helgason við Versali. Þau sem komu fram voru Bríet, Úlfur Úlfur, Solla stirða og Íþróttaálfurinn, Væbræðurnir og Leikhópurinn Lotta.

Skapandi sumarstörf settu svip sinn á svæðið við Molann og buðu upp á vegglist og fleira.

Við þökkum fyrir komuna!

17. júní 2026 í Kópavogsbæ
Fjallkonan á 17. júní í Kópavogsbæ
Fjallkonan á 17. júní í Kópavogsbæ
Latibær á 17. júní í Kópavogsbæ
Væb á 17. júní í Kópavogsbæ