Beint í efni
Til baka í yfirlit

Arn­ar­nes­veg­ur tek­ur á sig mynd

Nýr Arnarnesvegur og tengdar framkvæmdir eru óðum að taka á sig mynd.

Arnarnesvegur framkvæmdir
Nú styttist í að nýja brúin yfir Breiðholtsbraut verði tilbúin en þar er unnið að frágangi, ásamt vegtengingum sitt hvoru megin við brúna, eða frá Breiðholtsbraut að Vatnsendavegi. Á brúnni er bæði akbraut og göngu- og hjólastígur. Mynd/Vilhelm

Nýr Arnarnesvegur og tengdar framkvæmdir eru óðum að taka á sig mynd. Unnið er við uppsetningu umferðarljósa við gatnamót Breiðholtsbrautar og Arnarnesvegar og er áætlað að opna þennan veghluta fyrir umferð um næstu mánaðamót.

Fimmtudaginn 11. júní, verður umferð á Breiðholtsbraut færð yfir á syðri akrein milli Jaðarsels og Vatnsendahvarfs vegna framkvæmda við ný vegamót Breiðholtsbrautar og Arnarnesvegar. Vinna við færslu umferðarinnar hefst klukkan 6 að morgni og henni lýkur um kl. 9 daginn eftir.

Góður gangur er í framkvæmdum við Arnarnesveg, þriðja áfanga, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar. Nú styttist í að nýja brúin yfir Breiðholtsbraut verði tilbúin en þar er unnið að frágangi, ásamt vegtengingum sitt hvoru megin við brúna, eða frá Breiðholtsbraut að Vatnsendavegi. Á brúnni er bæði akbraut og göngu- og hjólastígur.

Skammt frá, eða við vegamót Breiðholtsbrautar og Vatnsendahvarfs, stendur yfir vinna við jarðvegsskipti og í vegstæði Arnarnesvegar, milli Vatnsendavegar og Rjúpnavegar, er unnið við fyllingar og frágang ofanvatnslagna.

Áætluð verklok Arnarnesvegar og tengdra framkvæmda eru eftir tæplega hálft ár, eða í nóvember 2026.

Nánar á vef Vegagerðarinnar