Ljósin tendruð á jólatrénu við menningarhúsin
Líf og fjör var á Aðventuhátíð Kópavogs sem fór fram í dag, laugardaginn 28.nóvember. Dagskrá var í menningarhúsum Kópavogs.

Líf og fjör var á Aðventuhátíð Kópavogs sem fór fram í dag, laugardaginn 28.nóvember. Dagskrá var í menningarhúsum Kópavogs frá 14.30 og var boðið upp á tónleika, jólaverkstæði, dans og heitt kakó. Í Salnum var opnuð sýning á jólaljósaverkum barna í Vatnsendaskóla og í Náttúrustofu Kópavogs var opnuð sýning á steinasafni Sigga. Í Gerðarsafni og Bókasafninu voru tónleikar og smiðjur fyrir unga sem aldna.
Útiskemmtun hófst klukkan 16.20 með tónlistarflutningi Skólahljómsveitar Kópavogs og svo stigu Þorri og Þura á svið og stýrðu dagskrá. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs tendraði svo á jólatré bæjarins með dyggri aðstoð Brynju Fossberg Hauksdóttir og gesta sem töldu niður. Loks var slegið upp jólaballi með jólasveinum sem kíktu í heimsókn.


