Beint í efni
Til baka í yfirlit

Ás­dís Krist­jáns­dótt­ir end­ur­ráð­in bæj­ar­stjóri

Ásdís Kristjánsdóttir var endurráðin bæjarstjóri Kópavogs á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar á kjörtímabilinu 2026-2030.

Ásdís Kristjánsdóttir
Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs.

Ásdís Kristjánsdóttir var endurráðin bæjarstjóri Kópavogs á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar á kjörtímabilinu 2026-2030. Ásdís sem er oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn tók við starfi bæjarstjóra í júní 2022 og hefur því gegnt starfinu í fjögur ár.

Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur verða áfram í meirihlutasamstarfi eins og á síðasta kjörtímabili og hafa sjö bæjarfulltrúa.

Á fundi bæjarstjórnar var lagður fram málefnasamningur meirihlutans sem ber heitið „Kópavogur 2030 – áfram í sókn!“ Samningurinn felur í sér fimmtíu og fimm verkefni sem sett verða í forgang á komandi kjörtímabili.

„Ég er afskaplega þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt og geng spennt til þeirra verkefna sem við ætlum að setja í forgang á kjörtímabilinu. Áherslur okkar endurspegla skýra sýn til framtíðar. Við ætlum að auðvelda og einfalda líf íbúa með góðri grunnþjónustu, ábyrgum rekstri og lágum sköttum á bæði heimili og fyrirtæki. Við munum tryggja markvissa uppbyggingu húsnæðis og annarra innviða sem skapar góð skilyrði fyrir lifandi samfélag, íþróttastarf í fremstu röð og blómlega menningu í ólíkum hverfum bæjarins. Ég heyri í samtölum mínum að Kópavogsbúar eru stoltir og ánægðir með sitt bæjarfélag og undir okkar forystu ætlum við að tryggja að svo verði áfram. Við höfum sett fram fimmtíu og fimm verkefni sem við munum vinna eftir á þessu kjörtímabili, verkefni sem eiga það eitt sameiginlegt að gera okkar frábæra bæ enn betri fyrir komandi kynslóðir. Það er mikill heiður að fá tækifæri til að vera áfram bæjarstjóri Kópavogsbúa næstu fjögur árin og ég hlakka til næstu fjögurra ára,“ segir Ásdís.