Beint í efni
Til baka í yfirlit

Barna­vernd­ar­þjón­usta Kópa­vogs leitar að vist­for­eldr­um

Vilt þú veita barni öruggt og hlýlegt heimili þegar á þarf að halda?

Barnaverndarþjónusta Kópavogs leitar að fjölskyldum sem er tilbúin að taka á móti börnum sem þurfa tímabundið að dvelja utan heimilis.

Hlutverk vistforeldra er að veita börnum umönnun, öryggi og stuðning, meðal annars í bráðatilvikum. Lögð er áhersla á að börnin geti áfram sótt sinn heimaskóla, tekið þátt í tómstundum og viðhaldið tengslum við nærumhverfi. Því er kostur að umsækjendur búi í Kópavogi.

Aðstæður og hæfni

Leitað er að fólki sem býr við stöðugar heimilisaðstæður og hefur svigrúm til að mæta þörfum barna með hlýju, þolinmæði og skilningi.

Reynsla af starfi með börnum og menntun sem nýtist eru kostir. Vistforeldrar starfa í nánu samstarfi við starfsfólk Barnaverndarþjónustu Kópavogs.

Leyfi frá GEV

Vistforeldrar þurfa leyfi frá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) til að taka barn í bráðavistun samkvæmt 84. gr. barnaverndarlaga. Sótt er um leyfið á Ísland.is -> Sækja um leyfi

Með umsókn þurfa að fylgja:

  • Læknisvottorð frá heimilislækni um líkamlegt og andlegt heilsufar umsækjanda.
  • Undirrituð heimild til öflunar sakavottorðs fyrir alla heimilismenn eldri en 15 ára.

GEV fer yfir umsóknina og óskar eftir umsögn barnaverndarþjónustu áður en ákvörðun er tekin um leyfisveitingu.

Þau sem þegar hafa gilt leyfi frá GEV eru hvött til að senda upplýsingar um sig á barnavernd@kopavogur.is. Starfsfólk Barnaverndarþjónustu Kópavogs mun í framhaldinu hafa samband við viðkomandi.

Umsóknarfrestur er til og með 10. nóvember 2026.

Hægt er að fá nánari upplýsingar með því að senda fyrirspurn á netfangið barnavernd@kopavogur.is