Beint í efni
Til baka í yfirlit

Vin­átta og gleði í Kópa­vogi

Haldið var upp á Vináttudaginn í skólum Kópavogs í tilefni af Alþjóðadegi gegn einelti.

Vináttudagur í Digranesi
Vináttudagur í Kópavogi 2026.
Nemendur leik- og grunnskóla ganga saman á Vináttudeginum 2026.
Nemendur leik- og grunnskóla ganga saman á Vináttudeginum 2026.

Nemendur leik-og grunnskóla í Kópavogi og starfsfólk skólanna fögnuðu vináttunni með ýmsum viðburðum í tilefni Alþjóðadags gegn einelti, 8. nóvember.

Daginn bar upp á sunnudag í ár og var því ýmist haldið upp á hann föstudaginn 6. nóvember eða mánudaginn 9.nóvember.

Ýmis konar dagskrá var í skólahverfum Kópavogs og er markmiðið að stuðla að jákvæðum samskiptum og vekja athygli á mikilvægi virðingar og vináttu.

Páll Óskar syngur fyrir nemendur Álfhólsskóla og leikskólanna Fögrubrekku, Efstahjalla og Álfaheiði.
Páll Óskar syngur fyrir nemendur Álfhólsskóla og leikskólanna Fögrubrekku, Efstahjalla og Álfaheiði.

Víða sameinuðust leik- og grunnskólabörn í göngu og sums staðar var boðið upp á skemmtiatriði. Í íþróttahúsinu Digranesi söng skólakórinn og svo mætti leynigesturinn Páll Óskar sem flutti lagið Eitt af blómunum og fleiri af sínum lögum við góðar undirtektir nemenda úr Álfhólsskóla, og leikskólunum Fögrubrekku, Efstahjalla og Álfaheiði.

Ásdís Kristjánsdóttir og Páll Óskar
Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og Páll Óskar á Vináttudegi 2026.

Vináttudagur hefur eru haldinn hátíðlegur í Kópavogi frá árinu 2012 og því mikil hefð sem skapast hefur fyrir því að fagna vináttunni og berjast gegn einelti.