Lóð við leikskólann Sólhvörf verður eins og börnin lögðu til
Börn á leikskólanum Sólhvörfum í Kópavogi afhentu Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra Kópavogs viðurkenningarskjal í þakklætisskyni fyrir að hafa hlustað á óskir þeirra um leiktæki á lóð leikskólans.

Börn á leikskólanum Sólhvörfum í Kópavogi afhentu Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra Kópavogs viðurkenningarskjal í þakklætisskyni fyrir að hafa hlustað á óskir þeirra um leiktæki á lóð leikskólans.
Börnin færðu Ásdísi einnig blóm og undirskriftarlista sem þau sýndu henni á fundi um daginn þar sem fram kemur hvaða leiktæki þau vilja fá á svæði sem er í endurnýjun á lóðinni.

Forsaga málsins er sú að þegar endurnýja þurfti þann hluta lóðarinnar sem hafði verið nýttur undir lausa kennslustofu fóru börnin að velta fyrir sér hvað kæmi á lóðina. Starfsfólkið heyrði að það voru ýmsar hugmyndir hjá börnunum og í anda Barnvæns sveitarfélags var efnt til fundar þar sem börnin ræddu sínar tillögur og komust að niðurstöðu um hvað þau vildu fá á svæðið.
Síðan var pantaður fundur hjá bæjarstjóra og á honum ræddu fulltrúar barnanna við Ásdísi um sinn óskalista sem þau höfðu öll undirritað með fingrafari.

Leiktækin sem verða sett á skólalóðina að óska barnanna eru drullusvæði, vegasalt, sandkassi og rólur. Bæjarstjóri sagði börnunum í heimsókn sinni í leikskólann að svæðið yrði tilbúið á næstu vikum og voru þau að vonum ánægð.
Ásdís Kristjánsdóttir þakkaði börnunum fyrir tillögurnar og starfsfólkinu fyrir að koma fundinum í kring. Leikskólastjóri Sólhvarfa er Dóra Margrét Guðmundsdóttir en auk hennar höfðu Elwira Motybel og Cecilia Foelsche Polo deildarstjórar veg og vanda af fundinum með bæjarstjóra sem lauk svo farsællega.


