Fjölmennt á Frístundamessu
Frístundamessa Kópavogs sem fram fór í fyrsta sinn laugardaginn 29.ágúst var vel sótt og lífleg.

Frístundamessa Kópavogs sem fram fór í fyrsta sinn laugardaginn 29.ágúst var vel sótt og lífleg. Fjölskyldur streymdu á viðburðinn sem fram fór í íþróttahúsinu Digranesi og kynntu sér fjölbreytt framboð íþrótta og annarra tómastunda sem börnum í Kópavogi stendur til boða.

Börnin og fullorðnir gátu spreytt sig á ýmsum íþróttum, spilað á hljóðfæri og fylgst með glæsilegum skemmtiatriði frá félögunum. Þá var boðið upp á pylsur og safa.

Einnig var frístundastyrkur Kópavogsbæjar kynntur en börn á aldrinum 6 til 18 eiga rétt á 70.000 á ári og 5 ára 90.000 krónum á ári.


