Beint í efni
Til baka í yfirlit

Fjór­ir leik­skólar verða rétt­inda­skólar UN­ICEF

Fjórir nýir leikskólar bættust í vor við í hóp réttindaskóla UNICEF í Kópavogi, leikskólinn Álfatún, Dalur, Kópasteinn og Urðarhóll.

Réttindaskóli UNICEF Álfatún
Leikskólinn Álfatún er meðal þeirra leikskóla sem hafa bæst í hóp réttindaskóla UNICEF í Kópavogi.

Fjórir nýir leikskólar bættust í vor við í hóp réttindaskóla UNICEF í Kópavogi, leikskólinn Álfatún, Dalur, Kópasteinn og Urðarhóll.

Það voru réttindaráð leikskólanna sem skipuð eru elstu börnunum sem tóku við viðurkenningarskjalinu og réttindafánanum við hátíðlega athöfn.

Í réttindaskólunum er lögð áhersla á að byggja upp lýðræðislegt umhverfi með því að rækta með markvissum hætti þekkingu, leikni og viðhorf sem hjálpa börnum að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í nútímasamfélagi.

Í leikskólum Kópavogs fá börn einmitt tækifæri til þess að æfa lýðræði í verki og læra að rödd þeirra skiptir máli.

Mannréttindi barna eru tekin alvarlega í leikskólum Kópavogs og viðurkenning sem Réttindaskóli er fagnaðarefni fyrir leikskólana og samfélagið allt. Að vera Réttindaskóli er skuldbinding um að skapa menningu þar sem börn hafa áhrif, tjá sig og fá að taka þátt.

Leikskólar Kópavogs vinna allir með Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og felur hann meðal annars í sér að starfsfólk skólanna vinnur með réttindi barna á öllum sviðum – í leik, samskiptum, námi og ákvörðunum. Það krefst meðvitaðrar vinnu og samstöðu um að virða börn sem fullgilda þátttakendur í eigin lífi.