Beint í efni
Til baka í yfirlit

Fræðslu­ganga í til­efni af­mæl­is

Efnt var til fræðslugöngu um Trjásafnið í Kópavogi 15.september síðastliðinn í tilefni 70 ára afmælis bæjarins og var gangan samstarfsverkefni Kópavogsbæja

Friðrik Baldursson, Ásdís Kristjánsdóttir og Sigurður Skúlason við gróðursetningu.
Friðrik Baldursson, Ásdís Kristjánsdóttir og Sigurður Skúlason við gróðursetningu.

Efnt var til fræðslugöngu um Trjásafnið í Kópavogi 15.september síðastliðinn í tilefni 70 ára afmælis bæjarins og var gangan samstarfsverkefni Kópavogsbæjar og Sögufélags Kópavogs. Friðrik Baldursson garðyrkjustjóri leiddi gönguna en naut stuðnings félaga úr Sögufélaginu við sögulegan fróðleik um byggð í grennd við Trjásafnið sem er austast í Fossvogsdal.

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri var með í för og við lok göngunnar gróðursetti hún tré, með hjálp Friðriks og Sigurðar Skúlasonar, í tilefni af 70 ára afmæli Kópavogsbæjar.

Trjásafnið skiptist í nokkra hluta og leiddi Friðrik gesti um garðinn en saga hans nær aftur til ársins 1995. Í garðinum er að finna um 1.200 tegundir trjáa og runna sem flest eru merkt þannig að gestir og gangandi geta glöggvað sig á tegundum.

Meðal garða í Trjásafninu eru Rósagarðurinn, Sígræni garðurinn, Yndisgarðurinn og Aldingarðurinn, en í honum eru ýmis ávaxtatré og berjarunnar. Friðrik sagði gestum frá þessum ólíku görðum.

Sigurður Skúlason var alinn er upp á nýbýlinu Snælandi vestar í Fossvogsdal og rifjaði upp hvernig var umhorfs áður fyrr á þessum slóðum þegar þar var stundaður búskapur.