Skapandi sumarstörf í frístundastarfi félagsmiðstöðva
Í sumar fengu unglingar úr Kúlunni og Dimmu tækifæri til að vinna að fjölbreyttum skapandi verkefnum í samstarfi félagsmiðstöðvanna og Vinnuskóla Kópavogs

Í sumar fengu unglingar úr Kúlunni og Dimmu tækifæri til að vinna að fjölbreyttum skapandi verkefnum í samstarfi félagsmiðstöðvanna og Vinnuskóla Kópavogs. Ungt og hæfileikaríkt fólk þróaði og skapaði meðal annars barnabækur, smásögur, stuttmyndir, tónverk, fatahönnun, endurhönnun fatnaðar og markaðsefni fyrir kvikmynd. Verkefninu lauk með glæsilegri sýningu í félagsmiðstöðinni Kúlunni þar sem afrakstur þriggja vikna vinnu var kynntur. Við erum afar stolt af frumkvæði, sköpunargleði og metnaði þátttakenda sem sýndu glögglega hversu margt ungt fólk hefur fram að færa þegar það fær tækifæri til að láta hæfileika sína njóta sín.
Skapandi sumarverkefni félagsmiðstöðva 2026:
- Þrautaævintýrið mitt eftir Rebeccu og Evu Maríu. Þrautabók fyrir börn á aldrinum 5-11 ára.
- Freydís og Flækjukallinn eftir Victoríu Dís. Barnabók með fallegum boðskap en hún samdi einnig handrit sem hægt er að nýta í leikrit fyrir börn á leikskólaaldri.
- Aftur Heim er stuttsaga eftir Berglindi sem fjallar um geimverur sem lenda í ýmsum ævintýrum þegar þær lenda óvart á jörðinni.
- Stuttmynd og tónverk eftir Eygló og Fanney.
- Wonder kids sem er stuttmynd um fótbolta eftir Halldór og Hilmi.
- Fataendurnýting, þar sem unnið var með gamlar flíkur og þeim gefið nýtt líf með endurhönnun eftir Friðdóru.
- Fatahönnun eftir Söndru en hún hannaði og saumaði flíkur í starfinu.
- Markaðsherferð fyrir bíómynd eftir Óskar. Hann notaðist við grafíska hönnun við hönnun á veggspjaldi fyrir bíómyndina Godzilla.


