Símamót í Kópavogi
Stærsta fótboltamót landsins, Símamótið, verður haldið dagana 9.-12.júlí.

Símamótið í fótbolta fer fram í Kópavogi dagana 9.-12.júlí.
Líkt og undanfarin ár munu um 3.100 stúlkur keppa á mótinu og verða spilaðir rúmlega 1600 leikir á mótssvæði Breiðabliks yfir helgina, bæði í Kópavogsdal og Fossvogsdal.
Þetta er stærsta fótboltamót sem fer fram á Íslandi og svona stóru móti fylgir gríðarleg vinna og og skipulagning og eru fjöldi sjálfboðaliða, starfsmanna Breiðabliks og Kópavogsbæjar sem koma að mótinu telur líklegast eitthvað nálægt 1000 manns.


