Spennandi starfsemi í Skapandi sumarstörfum
Skapandi sumarstörf eru í fullum gangi en 15 verkefmi með 24 þátttakendum voru valin til þátttöku í ár.

Það er líf og fjör í Molanum þessa dagana þar sem Skapandi sumarstörf Kópavogs eru í fullum gangi. Verkefnið hefur verið fastur liður í menningarlífi bæjarins í tvo áratugi og gefið hundruðum ungra skapandi einstaklinga tækifæri til að þróa hugmyndir sínar, öðlast starfsreynslu og stíga sín fyrstu skref í listsköpun og frumkvöðlastarfi.
Í ár voru 15 verkefni valin til þátttöku úr fjölmörgum umsóknum. Að baki þeim standa 24 ungmenni á aldrinum 18-25 ára sem vinna að fjölbreyttum skapandi verkefnum í sumar, auk fjögurra þátttakenda í Vegglist. Verkefnin spanna meðal annars fatahönnun, margmiðlunarlist, kvikmyndagerð, tónlist, heimildaljósmyndun, skúlptúr, sviðslistir og samfélags- og gjörningalist.
Fjöldi fyrri þátttakenda hafa haldið áfram í listnámi, menningarstörfum eða stofnað eigin verkefni og fyrirtæki. Margt þekkt listafólk hefur stigið sín fyrstu skref í Skapandi sumarstörfum.
Uppskerudagar Skapandi sumarstarfa 17.-24. júlí
Undir lok sumars mun afrakstur verkefnanna birtast á fjölbreyttum sýningum, gjörningum og öðrum viðburðum víðs vegar um bæinn á uppskerudögum Skapandi sumarstarfa sem fara fram í leikhúsi Kópavogs og menningarhúsum bæjarins 17.-24. júlí. Nákvæm dagskrá verður auglýst von bráðar. Hluti lokaverkefna verður jafnframt samofinn öðrum menningarhátíðum sem fara fram í Kópavogi, þar á meðal Hamraborg Festival og Vöku þjóðlistarhátíð, en jafnframt munu þátttakendur standa fyrir sjálfstæðum sýningum og viðburðum þar sem almenningi gefst kostur á að kynnast verkum þeirra nánar. Ef marka má fyrri ár má búast við fjölbreyttri og lifandi dagskrá sem mun setja svip sinn á Kópavog næstu vikurnar.


