Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar
Fyrsti fundur nýkjörinnar bæjarstjórnar Kópavogs fór fram þriðjudaginn 9. júní.

Fyrsti fundur nýkjörinnar bæjarstjórnar Kópavogs fór fram þriðjudaginn 9. júní.
Ellefu eru í bæjarstjórn Kópavogs og voru kjörin í bæjarstjórn 2026-2030 þau: Ásdís Kristjánsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Elísabet Berglind Sveinsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson og Hildur Einarsdóttir, Sjálfstæðisflokki. Orri Vignir Hlöðversson, Framsóknarflokki, Jónas Már Torfason og Eydís Inga Valsdóttir, Samfylkingu, María Ellen Steingrímsdóttir, Viðreisn og Einar Jóhannes Guðnason, Miðflokki.
Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur verða áfram í meirihlutasamstarfi eins og á síðasta kjörtímabili og eru bæjarfulltrúar meirihlutans sjö.
Á fyrsta fundi bæjarstjórnar var ráðning Ásdísar Kristjánsdóttur í starf bæjarstjóra samþykkt.
Forseti og formenn nefnda
Elísabet Berglind Sveinsdóttir var kjörinn forseti bæjarstjórnar, fyrsti varaforseti Orri Vignir Hlöðversson og annar varaforseti Einar Jóhannes Guðnason. Þau skipa einnig forsætisnefnd.
Kosið var í ráð og nefndir Kópavogsbæjar á fundinum. Formaður bæjarráðs er Andri Steinn Hilmarsson, formaður skipulags- og umhverfisráðs Hjördís Ýr Johnson, formaður menntaráðs er Karen Rúnarsdóttir, formaður velferðarráðs Björg Baldursdóttir, formaður menningar- og mannlífsnefndar Elísabet Berglind Sveinsdóttir.
Þá er formaður innkaupanefndar Guðmundur Jóhann Jónsson, formaður íþrótta- og lýðheilsunefndar Hildur Einarsdóttir, formaður notendaráðs í málefnum fatlaðs fólks er Signý Skúladóttir, formaður öldungaráðs er Helga Guðrún Jónasdóttir. Tengiliðir bæjarstjórnar við ungmennaráð eru þau Jónas Már Torfason og Elísabet Berglind Sveinsdóttir.
Yfirlit yfir alla kjörna fulltrúa í nefndir og ráð er að finna í fundargerð bæjarstjórnar.


