Geðrækt í gulum september
Kópavogsbær tekur þátt í gulum september og hvetur starfsfólk til þess að klæðast gulu þann 10. september.

Kópavogsbær tekur þátt í gulum september og hvetur starfsfólk til þess að klæðast gulu þann 10.september.
Í Gulum september er lögð áhersla á að auka meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna með kærleika, aðgát og umhyggju að leiðarljósi .
10. september er alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga og er fólk hvatt til þess að klæðast gulu þann dag.
Síðar í mánuðinum, nánar tiltekið frá 22. september, verður boðið upp á Geðræktarviku í Bókasafni Kópavogs í tilefni af gulum september og verður þar fjöldi viðburða sem tengjast málefninu.


