Stafræn skóladagatöl fyrir skólaárið 2026 - 2027 komin í loftið
Stafræn skóladagatöl fyrir leikskóla og grunnskóla Kópavogs fyrir skólaárið 2026–2027 eru nú aðgengileg á vef Kópavogsbæjar. Dagatölin eru á dagatalsskráarsniði sem hægt er að hlaða niður og setja inn í eigið dagatalaforrit.

Dagatölin hafa verið uppfærð fyrir nýtt skólaár og geta bæði þeir sem þegar nýta stafrænu dagatölin og nýir notendur sótt viðeigandi skrá fyrir sinn skóla.
Uppfærð dagatöl fyrir skólahljómsveit og frístundastarf verða birt síðar.
Leiðbeiningar um hvernig hlaða má dagatalsskránum niður og setja þær inn í algeng dagatalaforrit, svo sem Outlook og Google Calendar, má finna á sömu síðu og dagatölin.
Stafræn skóladagatöl - Kópavogsbær
Einfaldara skipulag skólaársins
Með því að setja dagatalið inn í eigið dagatal verða skipulagsdagar, leyfi, skólaslit og aðrir viðburðir tengdir skólastarfinu aðgengilegri og auðveldari í yfirsýn.
Lesa um verkefnið
Kynntu þér verkefnið Stafræn skóladagatöl hér.
Stafræn skóladagatöl | Kópavogur