Hamraborg Festival haldin í sjötta sinn
Hamraborg Festival er árlegur, vikulangur fögnuður lista og samfélags í hjarta Kópavogs sem stendur yfir dagana 28. ágúst – 4. september en þá kveðjum við sumarið með líflegri dagskrá sem er yfirfull af myndlistarsýningum, gjörningum, vinnusmiðjum, tónleikum og öðrum listviðburðum.

Ár hvert sprettur list úr öllum krókum og kimum hverfisins, og býðst íbúum sem og gestum og gangandi að kanna og fagna listinni í öllum sínum myndum. Það er auðvelt að rekast á listaverk á ferðum sínum um svæðið, svo sem við hversdagslegar erindagjörðir á borð við matarinnkaup en einnig geta gestir kosið að fylgja korti af hátíðarsvæðinu og upplifa dagskrána í heild sinni. Hátíðin er sköpuð í nánu samstarfi við nærsamfélagið og mörg verkanna eru í samtali við arkítektúr, sögu eða daglegt líf á svæðinu. Í gegnum árin hefur listin dreifist um menningarhús, búðarglugga, kaffihús, skrifstofur og almenningsrými Hamraborgar, á borð við Catalinu, Gerðarsafn, EuroMarket, Polo Vape Shop og Bókasafn Kópavogs..
Hátíðin verður opnuð föstudaginn 28. ágúst með tónleikum og fögnuði, í framhaldi af því fer fram Gjörningakvöld á Gerðarsafni. Listasýningar og útilistaverk eftir innlent sem erlent listafólk verða aðgengileg almenningi alla hátíðina. Í dagskránni verður einnig boðið upp á fjölbreytta viðburði og fjölskylduvænar listasmiðjur sem höfða til ólíkra aldurshópa.
Allt í allt verða yfir 50 viðburðir dreifðir yfir hátíðina: sýningar, tónleikar, gjörningar, og ýmsir aðrir listviðburðir.
Við hvetjum fólk til að næla sér í útprentað kort af hátíðarsvæðinu sem dreift verður um Hamraborgina í aðdraganda hátíðarinnar, en dagskrána í heild sinni má nálgast á heimasíðu Hamraborg Festival. Sjáumst í Hamraborg!
ÁFRÁM HAMRABORG!
Hamraborg festival er styrkt af: Kópavogsbæ, Myndlistarsjóði, Barnamenningarsjóði og Landsbankanum.
Allir viðburðir hátíðarinnar eru ókeypis og öllum opnir.


