Beint í efni
Til baka í yfirlit

Hörðu­valla­skóli fagn­aði 20 ára af­mæli

Hörðuvallaskóli fagnaði 20 ára afmæli föstudaginn 13.nóvember og var haldið upp á áfangann með glæsilegri dagskrá, opnu húsi og afmælisköku

Hörðuvallaskóli 20 ára
Núverandi og fyrrverandi skólastjórar og nemendur úr fyrsta útskriftarárgangi Hörðuvallaskóla.
Hörðuvallaskóli 20 ára
Ásdís Kristjánsdóttir, Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir og Íris Björk Eysteinsdóttir.

Auk núverandi nemenda og starfsfólks mættu foreldrar, fyrrverandi nemendur og starfsfólk og fögnuðu með gamla skólanum.

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir fluttu ávörp, Björk Eva Brink og Ernir Rafn Elvarsson nemendur úr 3.bekk sýndu dans og gestir sameinuðust í söng undir stjórn Áslaugar Helgu Hálfdanardóttur, fyrrverandi tónmenntakennara og höfundar Hörðuvallaskólalagsins. Dagskránni stýrði Íris Björk Eysteinsdóttir aðstoðarskólastjóri.

Hörðuvallaskóli 20 ára
Boðið var upp á köku í afmæli Hörðuvallaskóla.

Formlegri dagskrá lauk með stuttu ávarpi fulltrúa úr hópi fyrsta útskriftarárgangs skólans en því næst höfðu gestir tækifæri til að ganga um skólans og kynna sér ýmis verkefni sem unnin höfðu verið í tilefni af afmælinu. Þar mátti meðal annars sjá myndir sem 4. bekkingar teiknuðu af öllum fjórum skólastjórum skólans í fullri stærð, súlurit yfir nemendafjölda í skólanum yfir 20 ára starfstímabil hans og ýmis fleiri skemmtileg verk.

Það sem vakti einna mesta athygli var stórt og litríkt listaverk í sal skólans með sjálfsmyndum núverandi nemenda og starfsfólks.

Hörðuvallaskóli hóf göngu sína 2006 og voru eingöngu 56 nemendur í skólanum fyrsta starfsárið. Skólinn stækkaði afar hratt í takt við uppbygginguna í hverfinu og varð á nokkrum árum einn stærsti skóli landsins. Árið 2023 varð unglingadeildin að sér skóla, Kóraskóla, og er Hörðuvallaskóli í dag fyrir nemendur í 1.-7.bekk.