Kjörkassar Kópavogs gefins
Eldri kjörkassar Kópavogs fást gefins föstudaginn 30. október milli 10.30 og 13.30 og fimmtudaginn 5. nóvember milli 14.00 og 16.00. Hægt er að nálgast kjörkassana í þjónustuveri Kópavogsbæjar, Digranesvegi 1.

Athugið að ekki er hægt að taka frá kassa og eingöngu hægt að ná í kjörkassana á auglýstum tímum.
Í sveitarstjórnarkosningum síðastliðið vor voru nýir kjörkassar teknir í notkun um land allt og því var ákveðið að gefa gömlu kjörkassana.
Kjörkassarnir verða sem fyrr segir afhentir í þjónustuveri Kópavogsbæjar, Digranesvegi 1.
Tímasetningar:
30.október 10.30-13.30
5.nóvember 14-16

