Kópavogsbær ætlar að fjölga kennurum
Leiðbeinendur í grunnskólum í Kópavogi fá námsstyrk til að stunda kennaranám samhliða starfi. Markmið aðgerðarinnar er að fjölga kennaramenntuðu starfsfólki grunnskólanna.

Kópavogsbær hyggst fjölga kennaramenntuðu starfsfólki í grunnskólum með það að markmiði að styrkja faglegt skólastarf, auka stöðugleika og tryggja börnum í Kópavogi áframhaldandi gott námsumhverfi. Því hefur verið ákveðið að veita leiðbeinendum í grunnskólum námsstyrk til að stunda kennaranám samhliða starfi.
Aðgerðin er hluti af tillögupakkanum Framtíðin í fyrsta sæti sem bæjarstjórn Kópavogs samþykkti haustið 2025 og fól í sér 16 aðgerðir sem miða að því að styrkja grunnskólastarf í Kópavogi.
„Góð menntun er ein mikilvægasta undirstaða samfélagsins og hefur afgerandi áhrif á lífskjör og lífsgæði til framtíðar. Í Kópavogi ætlum við að fjölga kennurum í grunnskólum með því að skapa starfsfólki tækifæri til að afla sér kennaramenntunar samhliða starfi. Með þessu styrkjum við faglegt starf skólanna og byggjum upp öflugt skólasamfélag þar sem börn fá góða kennslu og stuðning til að ná árangri. Fjölgun kennara er fjárfesting í framtíð barna okkar, skólanna og samfélagsins í heild. Fyrir foreldra og nemendur snýst þetta fyrst og fremst um eitt: að styrkja grunninn að góðu skólastarfi og tryggja að börn í Kópavogi fái þá menntun sem þau eiga skilið,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs.
Í tillögu um fjölgun kennara er meðal annars horft til reynslu Kópavogsbæjar í leikskólum, þar sem starfsfólki hefur gefist kostur á að sameina starf og nám með góðum árangri.
Menntun og fagþekking kennara hafa mikil áhrif á gæði kennslu, námsárangur, getu skóla til að mæta fjölbreyttum þörfum nemenda og árangur skólasamfélagsins í heild. „Hærra hlutfall kennaramenntaðra starfsmanna styrkir faglegt starf skólanna, eykur stöðugleika í mönnun, styður við faglegt samstarf og þróun skólastarfs auk þess að draga úr starfsmannaveltu. Jafnframt getur það leitt til betri nýtingar mannauðs og lægri kostnaðar vegna endurtekinna ráðninga til lengri tíma litið,“ segir í tillögunni.


