Beint í efni
Til baka í yfirlit

Kópa­vog­ur fagnar rétt­ind­um barna - Mál­þing í sam­starfi við UN­ICEF á Ís­landi

Málþingið fer fram fimmtudaginn 20. nóvember kl. 08:30-09:30 í Salnum, Tónlistarhúsi (Hamraborg 6, Kópavogi).

Kópavogur fagnar réttindum barna - Málþing í samstarfi við UNICEF á Íslandi
Kópavogur fagnar réttindum barna - Málþing í samstarfi við UNICEF á Íslandi

Í tilefni afmælis Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þann 20. nóvember 2025 og afmælishátíðar Kópavogsbæjar býður Kópavogsbær, í samstarfi við UNICEF á Íslandi, til skemmtilegs og fróðlegs málþings um réttindi barna.

Málþingið fer fram fimmtudaginn 20. nóvember kl. 08:30-09:30 í Salnum, Tónlistarhúsi (Hamraborg 6, Kópavogi).

Við viljum heyra raddir barna og ræða hvernig við getum saman gert Kópavog að enn betri stað fyrir öll börn.

Tilgangur og markmið málþingsins

  • Að kynna verkefnið Barnvænt sveitarfélag og aðgerðir Kópavogsbæjar í tengslum við það.
  • Að koma sjónarmiðum barna og ungmenna á framfæri með virkum hætti.
  • Að auka vitund og þátttöku bæjarbúa í réttindamálum barna og ungmenna í sveitarfélaginu.

Dagskrá

  • Húsið opnar Léttar veitingar og myndataka
  • Ávarp: Bæjarstjóri Kópavogs og Mennta- og barnamálaráðherra.
  • Kynning á verkefninu Barnvænt sveitarfélag - frumsýnt verður nýtt kynningarmyndband.
  • Pallborðsumræður sem börn og ungmenni stýra.
  • Tónlistaratriði frá leikskólabörnum.

„Réttindi barna eiga að vera leiðarljós í allri stefnumótun og starfsemi sveitarfélagsins. Með verkefninu Barnvænt sveitarfélag viljum við tryggja að börn hafi raunveruleg áhrif á umhverfi sitt og að ákvarðanir sem varða þau séu teknar með þeirra sjónarmið í huga,“ Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs en hún mun opna þingið með ávarpi.

Öll hjartanlega velkomin hlökkum til að sjá sem flesta og taka sameiginlega skref í átt að barnvænni framtíð í Kópavogi.