Beint í efni
Til baka í yfirlit

Fyrsta Frí­stunda­messa Kópa­vogs verð­ur hald­in 29. ág­úst

Frístundamessa Kópavogs verður haldin í fyrsta skipti laugardaginn 29. ágúst í íþróttahúsinu Digranesi frá 11 til 14.

Frístundamessan er tækifæri fyrir íþrótta- og tómstundafélög til þess að kynna starfsemi sína fyrir börnum og fjölskyldum og er Kópavogsbær fyrsta sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu sem efnir til slíks viðburðar.

„Við erum mjög spennt að halda Frístundamessu í Kópavogi í fyrsta sinn og vonumst til þess að sjá sem flest börn og fjölskyldur þeirra. Þetta verður líflegur og skemmtilegur viðburður og við hvetjum Kópavogsbúa til þess að taka daginn frá,“ segir Ana Tepavcevic verkefnastjóri íþróttadeildar.

Alls ætla um 20 íþrótta- og tómstundafélög að taka þátt, flest úr Kópavogi en einnig úr Reykjavík og Hafnarfirði. Boðið verður upp á skemmtilega dagskrá á frístundamessunni og veitingar fyrir gesti og gangandi.

Hvetjum öll til þess að fylgjast með en dagskráin verður birt þegar nær dregur.

Hlekkur á viðburð á Facebook.