Vaka þjóðlistahátíð í Kópavogi
Kópavogur breytist í suðupott lifandi hefða dagana 13.–19. september þegar VAKA þjóðlistahátíð, sem nú er haldin í ellefta sinn, hreiðrar um sig í menningarhúsum bæjarins.

Á hátíðinni koma saman félög, hópar og einstaklingar sem starfa á sviði þjóðlista á Íslandi, þar á meðal kvæðamenn, tónlistarfólk, dansarar, handverksfólk og fræðafólk.
Meðal hápunkta eru opnunartónleikarnir GÁRUR, þar sem þjóðlagatvíeykið FUNI fagnar útgáfu nýrrar plötu. Þar kemur pólska söngkonan og dulcimerleikarinn Ania Broda einnig fram. Á aðaltónleikum hátíðarinnar deilir verðlaunasveitin UMBRA sviðinu með Ingrid Lingaas Fossum, sem hefur verið nefnd drottning langeleiksins, og fiðluleikaranum Vegar Vårdal. Þau hafa bæði hlotið nafnbótina Þjóðlagatónlistarmaður ársins, í Noregi. Heimilisiðnaðarfélag Íslands, einu viðurkenndu félagasamtök UNESCO á Íslandi á sviði óáþreifanlegs menningararfs, tekur virkan þátt í dagskránni og Þjóðdansafélag Reykjavíkur fagnar 75 ára afmæli sínu. Þá stendur Kvæðamannafélagið Iðunn fyrir sínum árlega rímnafögnuði á degi rímnalagsins og í ár munu kvæðamenn- og konur af yngri kynslóðinni flytja glænýjar rímur.
Að venju býðst gestum að sækja fjölbreyttar vinnustofur, barna- og fjölskyldudagskrá og fjölmarga opna viðburði. Nokkrir nýir dagskrárliðir bætast við í ár: RÆMUR, bíókvöld helgað heimildamyndum og þjóðlegum kvikmyndaarfi, ÞRÆÐIR – hlaðborð þjóðlista, þar sem handverk, sögur, söngur og samtöl fléttast saman í notalegri samverustund og KRAKKAVAKA, þar sem kvæðamenn og alþýðustrengjaleikarar framtíðarinnar leika listir sínar undir leiðsögn framúrskarandi leiðbeinenda. Laugardaginn 19. september breytist fordyri Salarins í markaðstorg þar sem m.a. verður hægt að versla fallegt handverk. Hátíðinni lýkur svo á Vökupartíi en í þetta sinn hefst kvöldið á hagyrðingaskemmtun undir stjórn Evu Maríu Jónsdóttur og Péturs Blöndal - áður en dansgólfið opnast fyrir ekta þjóðdansaball. Færeyskur tónlistar- og dansarfur verður einnig í forgrunni með þátttöku tónlistar- og dansfólks undir stjórn Kristian Blak. Öll eru velkomin að taka þátt, hvort sem þau kunna sporin eða ekki.
VAKA þjóðlistahátíð hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur fyrir þjóðlistir á Íslandi. Hátíðin byggir á þeirri hugsjón að menningararfur sé lifandi og berist áfram í gegnum raddir nýrra kynslóða. Ókeypis er á fjölmarga viðburði hátíðarinnar en hægt er að nálgast hátíðarpassa og miða á einstaka viðburði á Tix.
Nánari upplýsingar um dagskrá, viðburði og þátttakendur má finna á:
www.vakareykjavik.is
www.facebook.com/vakaiceland
Miðar og hátíðarpassar:

