Beint í efni
Til baka í yfirlit

Sum­ar­skemmt­un í Guð­mund­ar­lundi

Árleg sumarskemmtun FEBK, Skógræktarfélags Kópavogs og Kópavogsbæjar var haldin í Guðmundarlundi þriðjudaginn 23. júní. Góð þátttaka var í ferðinni og nutu gestir samveru, tónlistar og veitinga úti sem inni.

Sumarskemmtun í Guðmundarlundi 2026
Sumarskemmtun í Guðmundarlundi árið 2026, á myndinni eru frá vinstri: Elísabet Berglind Sveinsdóttir, Orri Vignir Hlöðversson, Geri Þórðarson og Kristinn H. Þorsteinsson.

Árleg sumarskemmtun FEBK, Skógræktarfélags Kópavogs og Kópavogsbæjar var haldin í Guðmundarlundi þriðjudaginn 23. júní. Góð þátttaka var í ferðinni og nutu gestir samveru, tónlistar og veitinga úti sem inni.

„Hér gefst tækifæri til að njóta náttúrunnar, hitta góða vini og eiga saman notalega stund. Slíkar stundir skipta miklu máli og eru mikilvægur þáttur í því að efla samfélagið okkar í Kópavogi,“ sagði Elísabet Berglind Sveinsdóttir forseti bæjarstjórnar Kópavogs í ávarpi sínu.

Þá flutti Orri Vignir Hlöðversson bæjarfulltrúi tölu og minntist tengdaföður sín, Guðmundar Halldórs Jónssonar, stofnanda BYKO og frumkvöðuls í skógrækt, en Guðmundur og fjölskylda hófu skógrækt í reitnum sem síðar hlaut nafnið Guðmundarlundur.

Kristinn H. Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Kópavogs bauð svo gesti velkomna í Guðmundarlund og upplýsti meðal annars um að áætlað er að árlegur gestafjöldi í Guðmundarlundi sé um 150.00 til 200.000 þúsund manns.

Loks sagði Geir Þórðarson formaður Félags eldri borgara í Kópavogi nokkur orð og ræddi meðal annars hversu miklar samfélagsbreytingar eldra fólk hefur upplifað á sinni ævi.

Milt og gott veður var á meðan skemmtuninni stóð en þetta er í sextánda sinn sem Félag eldri borgara í Kópavogi, FEBK, skipuleggur sumarskemmtun í Guðmundarlundi og er hún samstarfsverkefni Félags eldri borgara, Skógræktarfélags Kópavogs og Kópavogsbæjar.