Kópavogur meðal fremstu sveitarfélaga landsins í PISA 2025
Kópavogur og Reykjavík eru einu sveitarfélögin þar sem nemendur mælast yfir landsmeðaltali í lesskilningi, stærðfræðilæsi og vísindum samkvæmt nýrri greiningu á niðurstöðum Pisa 2025.

Ný greining Mennta- og barnamálaráðuneytisins á niðurstöðum PISA 2025 sýnir að nemendur í Kópavogi standa sig vel í samanburði við önnur stærstu sveitarfélög landsins. Kópavogur og Reykjavík eru einu sveitarfélögin þar sem nemendur mælast yfir landsmeðaltali á öllum þremur sviðum rannsóknarinnar: lesskilningi, stærðfræðilæsi og vísindum.
„Það er ánægjulegt að sjá að nemendur í Kópavogi ná góðum árangri í samanburði við nemendur annars staðar á landinu. Niðurstöðurnar endurspegla það öfluga starf sem unnið er í grunnskólum bæjarins og fagmennsku starfsfólks. Um leið eru þær okkur hvatning til að halda áfram að þróa skólastarfið og tryggja öllum börnum sem best skilyrði til náms og þroska. Verkefnið fram undan er skýrt: Við þurfum að gera enn betur, bæði í Kópavogi og á landsvísu,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir,
PISA-rannsóknin metur hæfni 15 ára nemenda í lesskilningi, stærðfræði og vísindum og er ein umfangsmesta alþjóðlega menntarannsókn sem framkvæmd er. Sveitarfélögin sjö sem greind voru sérstaklega ná til um 75% þátttakenda í rannsókninni á Íslandi.


