Kópavogur verður Jólavogur
Í aðdraganda jóla býður Kópavogur upp á fjölbreytta jóladagskrá fyrir öll sem vilja njóta hátíðanna, eiga góða stund saman og komast í jólaskap.

Jóladagskráin hefur fengið nafnið Jólavogur og verður kynnt undir því heiti.
Jólabókaspjall Bókasafns Kópavogs fer fram fimmtudaginn 19. nóvember og markar viðburðurinn upphaf jólalegra viðburða í menningarhúsum bæjarins sem teygja sig yfir alla aðventuna.
Bærinn er ljósum prýddur nú sem fyrr en hafist var handa við að skreyta í október. Föstudaginn 20.nóvember verður kveikt á jólastjörnunni á Hálsatorgi og eru leik- og grunnskólabörnum úr næsta nágrenni boðið að vera viðstödd.
Laugardaginn 28.nóvember fer Aðventuhátíð Kópavogs fram. Þann dag er fjölbreytt dagskrá í og við menningarhúsin sem nær hápunkti þegar tendrað er á jólatré bæjarins og slegið er upp jólaballi fyrir gesti.
Í ár er svo bryddað upp á þeirri nýjung að bjóða upp á dagskrá í Smáralind alla laugardaga í desember fram að jólum. Þá verður boðið upp á dagskrá í Guðmundarlundi tvo sunnudaga á aðventunni.
„Við höfum að leiðarljósi að bjóða upp á viðburði sem eru fjölbreyttir og skemmtilegir. Vonandi taka sem flestir íbúar þátt í jóladagskránni okkar því þar er eitthvað við allra hæfi og mjög margir viðburðir eru ókeypis, allt frá smiðjum til tónleika og leiksýninga,“ segir Vigdís Jakobsdóttir verkefna- og viðburðastjóri menningarmála í Kópavogi.
Jólahús Kópavogs verður valið eins og undanfarin ár og verður auglýst eftir tilnefningum er líður nær desember.

