Beint í efni
Til baka í yfirlit

Sala­veg­ur lok­að­ur að hluta 8.júní

Mánudaginn 8. júní frá kl. 13:00 til 16:00 verður Salavegur milli Glósala og Kórsala lokaður vegna malbiksframkvæmda.

Salavegur lokun 9.maí
Salavegur lokun 9.maí.

Mánudaginn 8. júní frá kl. 13:00 til 16:00 verður Salavegur milli Glósala og Kórsala lokaður vegna malbiksframkvæmda. Aðkoma að eystri hluta Salavegar er frá Arnarnesvegi og að vestari hluta Salavegar frá Fífuhvammsvegi. Aðkoma að Goðasölum, Glósölum, Hásölum, Hlynsölum, Jórsölum og Jötunsölum verður takmörkuð á meðan framkvæmdum stendur og eru íbúar beðnir um að huga að því að sinna erindum utan framkvæmdatímans ef þess er nokkur kostur. Umferð gangandi og hjólandi helst óskert en sýna þarf aðgát þar sem farið er um í nágrenni við vinnuvélar. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og eru allir vegfarendur óháð fararmáta beðnir um að sýna tillitssemi, halda hraða í hófi og virða merkingar.

----